Útgáfudagur - Haust 2019

30. apríl 2019 T Ú g Á f A Útgáfudagur SAMFÉLAGSGREINAR BÖRN Í OKKAR HEIMI Bókaflokkurinn Börn í okkar heimi samanstendur af fjórum bókum: Fátækt og hungur, Flóttamenn og farandfólk, Fordómar og þröngsýni og Stríð í heimi. Eins og titlar bókanna bera með sér fjalla þær um málefni sem eru ofarlega á baugi um allan heim. Með útgáfunni er kennurum gert auðveldara fyrir að fjalla um þessi mál, sem oft eru viðkvæm og flókin. Fjallað er um hugtök sem reynst geta börnum framandi til að gefa skýrari mynd af viðfangsefninu. Áhersla er á skýran texta og myndmál en bækurnar prýðir mikill fjöldi teikninga. Kennsluleiðbeiningar fylgja hverri bók, opnu fyrir opnu og samanstanda af hugmyndum að umræðuefni og verkefnum. Bækurnar fjórar eru afgreiddar saman í einum pakka. Þegar kápur þeirra eru settar saman mynda þær eina heild og sýna heiminn á táknrænan hátt. EFNIÐ SAMANSTENDUR AF: fjórum grunnbókum og kennsluleiðbeiningum á vef

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=