Útbrot

2 Rafíþróttir er samheiti yfir skipulagða keppni í tölvuleikjum. Í gegnum tíðina hefur þetta átt við þegar margar tölvur eru settar upp í sama rými og fólk keppist við að standa sig sem best. Þannig var keppt á heimsmeistaramótinu í Atari leiknumSpace Invaders árið 1980. ​Síðan þá hefur tækninni fleygt fram og tölvuleikir í dag eru að miklu leyti spilaðir í gegnum netið. Þetta nýja umhverfi hefur skapað mun betri aðstæður til samkeppni en áður, ekki þarf lengur fjölmargar tölvur á einum stað heldur geta lið frá öllum heimshornum keppt á móti hvert öðru á netinu. ​Á síðustu 10 árum hafa vinsældir rafíþrótta aukist gríðarlega. Í dag eru yfir 400 milljónir manna sem fylgjast með rafíþróttum í heiminum og hafa stærstu viðburðirnir sett áhorfsmet sem gefa hefðbundnum íþróttum ekkert eftir. Sem dæmi má nefna að yfir 60 milljón manns fylgdust með úrslitaleik liðanna Royal Never Give Up og Kingzone Dragonx í League of Legends sumarið 2018. Það er þrefaldur fjöldi þeirra sem horfðu á úrslitaleik bandarísku körfuboltadeildarinnar, NBA árið 2017. Annar rafíþróttaviðburður í Katowice, Póllandi árið 2017 dró að 173.000 áhorfendur, tvöfalt fleiri en voru viðstaddir Ofurskálina eða Super Bowl sem er úrslitaleikurinn í bandarísku ruðningsdeildinni, NFL sama ár. ​Samhliða þessum vexti hafa rafíþróttir einnig vaxið hratt sem iðnaður. Það er ekki langt síðan bestu spilarar heims æfðu sig heima án þjálfara og þurftu sjálfir að sjá um ferðalög sín og útgjöld. Lítið var um stuðning. Í dag æfa atvinnumenn markvisst undir handleiðslu þjálfara í húsnæði sem þeim er útvegað af liðinu. Mörg lið eru einnig með kokka, næringarfræðinga, einkaþjálfara og íþróttasálfræðinga til að hjálpa til við að ná sem bestum árangri. RAFÍ ÞRÓTTI R RAFÍ ÞRÓTTI R NJÓTA M I KI LLA VI NSÆLDA U M ALLAN H EI M OG H EFU R ALÞJÓÐAÓ LYM PÍ U N EFN D I N SÝNT ÁH UGA Á AÐ TAKA GREI N I NA I N N Á Ó LYM PÍ U LEI KANA Í PARÍS ÁRIÐ 2024. FRÆÐITEXTI U PPLÝS NGAR ÚTBROT BROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT FRÆÐITEXTI ITEXTI ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT ÚTBROT

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=