Í þessari bók kynnist þú sögum kvenna frá upphafi Íslandsbyggðar og fram á 19. öld. Þær sinntu fjölbreyttum og mikilvægum störfum, sumum sem þekkjast enn í dag og öðrum sem hafa horfið með tímanum. Konur héldu heimilum gangandi, kenndu börnum að lesa, hjúkruðu sjúkum, tóku á móti börnum, sóttu sjóinn, og sinntu verkefnum sem ekki voru síður mikilvæg en þau sem karlar höfðu á sinni könnu. Íslandssagan er aðeins hálfsögð ef einungis er fjallað um karla. Þessi bók varpar ljósi á hluta þeirrar sögu sem oft hefur farið framhjá okkur – sögu kvenna sem lifðu, unnu og lögðu sitt af mörkum löngu áður en konur fengu að mennta sig í skólum og gegna embættum. 40370
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=