Út úr skugganum - inn í dagsljósið

8. Myndlæsiverkefni – Konan í mynd Veldu mynd úr bókinni sem tengist einni konu. Skoðaðu myndina vel og svaraðu eftirfarandi: Hvað sérðu á myndinni? Lýstu henni nákvæmlega. • Hvað segir myndin um konuna, störf hennar eða lífsskilyrði? • Hvaða stemningu eða tilfinningu skapar myndin? • Hvernig hjálpar myndin þér að skilja söguna betur? Að lokum: Hvernig dregur myndin konuna fram í dagsljósið? 9. Rannsóknarverkefni – Konan utan bókarinnar Veldu eina konu eða einn atburð úr bókinni og leitaðu frekari upplýsinga um hann á netinu. Notaðu að minnsta kosti tvær ólíkar heimildir. Hvaða nýju upplýsingar fannstu? Voru heimildirnar sammála eða kom eitthvað ólíkt fram? Hvað bætir þessi nýja vitneskja við söguna í bókinni? Að lokum skaltu íhuga: Hvers vegna er mikilvægt að halda áfram að segja sögur kvenna – jafnvel eftir að bókinni lýkur? 10. Út úr skugganum – inn í dagsljósið Veldu konu og sýndu hvernig hún kom „út úr skugganum og inn í dagsljósið“. Það getur verið: veggspjald, stutt myndskeið eða hlaðvarpsþáttur, leikrit, myndasaga eða annað sem þér dettur í hug. Gangi þér vel að láta konurnar stíga enn lengra fram í dagsljósið! 62

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=