7. Ritun – framhald af fortíðinni Veldu einn kafla og hugsaðu þér hvað gæti gerst eftir að sagan endar – og búðu til þitt eigið framhald. Hvernig hefði líf konunnar sem þú valdir getað þróast áfram? Hvað hefði hún viljað gera hefði hún lifað á öðrum tíma – eða jafnvel í dag? Skiptir máli á hvaða tíma konan lifði? Veldu hvernig þú segir frá: • Skrifaðu dagbók eins og konan sjálf sé að skrifa um líf sitt og tilfinningar eftir atburði sögunnar. „ Kæra dagbók, í dag tók ég ákvörðun sem mun breyta öllu …“ • Gerðu myndasögu með texta. Sýndu hvað gerist næst með myndum og samtölum. • Skrifaðu beint framhald eins og það væri næsti kafli sögunnar. Hvað gerist eftir að sögunni lýkur? Verða breytingar hjá konunni eða öðrum konum í kringum hana? • Búðu til fréttagrein – eins og frétt úr bæjarblaði eða fréttasíðu þess tíma: „Húsmóðir bjargar börnum sínum eftir að eldurinn slokknaði.“ „Þuríður formaður er ósátt við launin sín.“ „Guðrún Ósvífursdóttir neitar að giftast.“ „Skáldkona skrifar metsölubók um sögu kvenna.“ „Vinnukona lætur engan karl segja sér fyrir verkum.“ Láttu hugmyndaflugið ráða för. Þú mátt breyta tíma, umhverfi og sjónarhorni. Kannski tekst konan á við nýja áskorun, breytir lífi sínu eða hittir konur framtíðarinnar. 61
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=