Út úr skugganum - inn í dagsljósið

5. Fortíðin sem spegill á nútímann Veldu konu. Berðu saman líf hennar og líf kvenna í dag. • Hvað er líkt? • Hvað er ólíkt? • Hvaða störf eða hlutverk sem hún sinnti eru enn til í dag? • Var líf kvenna erfiðara hér áður fyrr en það er á okkar dögum? • Hvaða áhrif hafði skólaganga eða skortur á henni á möguleika kvenna í lífinu? 6. Bókmenntagreining – hvað finnst þér? Veldu einn kafla. Þú getur valið að vinna skriflega, myndrænt eða munnlega. Kjóstu það sem hentar þér best. 1. Hver er boðskapur sögunnar? Er einhver ádeila (t.d. á samfélagið, skólann, foreldra eða samskipti fólks)? Útskýrðu með dæmum úr sögunni. 2. Tímalína sögunnar. Teiknaðu tímalínu með helstu atburðum í réttri röð. Þú getur notað örvar, tákn, liti eða myndir. 3. Hvenær gerist sagan? Gerist hún á ákveðnu tímabili í sögu Íslands eða á sérstökum tíma árs? 4. Hverjar eru aðalpersónurnar í kaflanum? 5. Hvað vakti mesta athygli þína í sögunni og hvers vegna? Var það atburður, ákvörðun, aðstæður eða eitthvað sem kom þér á óvart? 60

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=