2. „Ég er …“ – rödd úr fortíðinni Veldu eina konu úr bókinni. Skrifaðu stutta fyrstu persónu frásögn (10–15 línur) þar sem þú talar eins og konan sjálf: „Ég heiti Guðrún. Ég sit hér á Helgafelli og hugsa um líf mitt ...“ Þú getur ákveðið hvort hún segir frá því sem gerðist eða hvernig hún myndi líta á líf sitt í dag. 3. Út úr skugganum – hvatning Veldu kafla, ímyndaðu þér að konan/konurnar í kaflanum fengju að tala við ungt fólk í dag. Hvað myndu þær segja? Skrifaðu hvatningarsetningu eða stuttan texta sem byrjar svona: „Það sem ég vil að þið vitið er …“ Eða: „Ef ég gæti sagt ykkur eitt …“ 4. Sköpunarverk Veldu eina konu og síðan eitt af eftirfarandi: • Gerðu stutta myndasögu (3–4 ramma) um eitt atvik úr lífi hennar. • Útbúðu leikþátt eða útvarpsviðtal við hana (í hópi). • Hannaðu tákn eða merki sem lýsir styrk hennar (t.d. brot úr saumi, bókstaf, blóm, skip, bók o.s.frv.). • Teiknaðu mynd af konunni í umhverfi sínu. 59
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=