VERKEFNI Út úr skugganum – inn í dagsljósið Hér eru tillögur að fjölbreyttum verkefnum sem hægt er að vinna eftir lestur kafla úr bókinni Út úr skugganum – inn í dagsljósið. Verkefnin má vinna í stílabók eða tölvu. Markmið þeirra er að dýpka skilning á sögu íslenskra kvenna sem oft hafa verið í skugganum, setja sig í þeirra spor og greina hlutverk þeirra í samfélaginu. Með lestri, umræðum og skapandi verkefnum er lögð áhersla á lesskilning, gagnrýna hugsun og skilning á samfélagi fyrri tíma. 1. Veldu þína konu Lestu eina sögu úr bókinni. Veldu konu sem þér finnst áhugaverð, hugrökk, sérstök eða ólík öðrum sem þú hefur lesið um. Skrifaðu stuttan texta (5–10 línur) um: • hver hún var • hvað hún gerði • hvers vegna þú valdir hana Útbúðu síðan mynd eða kort sem sýnir hvar saga hennar gerist. Þú getur teiknað Ísland (eða heimskort ef hún ferðaðist til útlanda) og merkt: • hvar hún bjó • hvert hún fór • atvik úr lífi hennar sem þú manst sérstaklega vel eftir 58
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=