56 Stundum dreymdi ungar ljósmæður huldumenn sem báðu þær að aðstoða konur sínar við að fæða barn. Þegar barnið var fætt fylgdi huldumaðurinn þeim aftur til mannheima. Því miður voru hulduhjónin svo fátæk að þau gátu ekki launað þeim fyrir hjálpina. Í staðinn blessuðu þau ljósmæðurnar og sögðu að þær yrði gæfusamar í starfi. Þetta þótti ungu ljósmæðrunum miklu betri laun en gull og gersemar. Oft reyndi á ráðsnilld og kjark ljósmóðurinnar. Flestar ljósmæður í gamla daga voru mjög trúaðar. Þær fóru oft með bænir þegar erfiðlega gekk og voru sannfærðar um að hönd Guðs hefði leitt þær og styrkt í starfi.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=