54 vinstra læri konu þegar hún var að fæða eða lagður á magann á henni. Svo kom fyrir að kona var látin drekka vatn eða vín sem lausnarsteinninn hafði legið í. Menntaðar ljósmæður gátu aftur á móti stundum notað lyf og einhver tæki sem þær fengu hjá læknum. Áður en bílar og símar komu til sögunnar urðu ljósmæður oft að ferðast langa leið til að taka á móti barni. Það eru til ótal sögur af ljósmæðrum sem lögðu sig í lífshættu í störfum sínum. Þær þurftu að fara af stað hvernig sem veðrið var og mjög oft fótgangandi. Ingibjörg Jósepsdóttir fæddist árið 1864. Hún var ljósmóðir á Vestfjörðum, meðal annars á Hornströndum. Eitt sinn að nóttu var hún sótt til að taka á móti barni. Úti var stórhríð og mikið frost. Ingibjörg klæddi sig hratt í mjög hlý föt. Hún og fylgdarmaður hennar þurftu að klífa brattar hlíðar og fara yfir fjallveg. Á leiðinni lentu þau í snjóflóði en komust bæði lífs af. Samtals voru þau fimm klukkustundir á leiðinni, fótgangandi.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=