Út úr skugganum - inn í dagsljósið

52 Þó að sjókonur hafi margar verið mjög sterkar og ekkert síður góðir ræðarar en karlmenn voru þær ekki allar stórar. Þær voru hins vegar mjög duglegar, hugrakkar og ákveðnar eins og Katrín Unadóttir. Katrín fæddist árið 1878. Systir hennar var mjög fátæk og átti bara eina kú og þurfti því nauðsynlega að fá fisk til að gefa fjölskyldu sinni að borða. Katrín vildi aðstoða systur sína. Hún fór að báti sem var á leið út á sjó og bað um að fá að vera háseti. Skipverjar vildu ekki leyfa henni að sigla því hún ætti bara skinnbuxur en engan sjóstakk. Það væri hreinlega óábyrgt af þeim að hleypa henni um borð. Þegar Katrín gekk heim á leið sá hún eitthvað fljóta á sjónum. Hún óð út í og náði að fanga það. Þetta reyndist vera sjóstakkur. Hún hljóp því aftur að skipinu og fékk að sigla og reyndist vera mjög fiskin.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=