51 Þuríður var ekkert að pæla í áliti annarra og gekk um eins og karlmaður. Kannski vildi hún klæða sig eins og karl til að öðlast sömu virðingu og þeir. Svo þótti henni ef til vill þægilegra að ganga í buxum. Oftast voru það ungar konur, aðallega vinnukonur, sem voru sjókonur. Flestar hættu sjómennsku þegar þær giftu sig eða urðu eldri. Margar, eins og Þuríður og Halldóra, voru þó á sjó þar til þær urðu gamlar. Sumum konum fannst gaman að vera sjókonur en aðrar hreinlega neyddust til þess. Á fámennum og fátækum stöðum þurftu konur oft að róa því ekki voru nægilega margir karlmenn til að manna skipin. Á fátækum heimilum kom það fyrir að húsmóðirin þurfti að fara til veiða með manninum sínum og skilja yngri börnin eftir í umsjá elsta barnsins. Það var sem betur fer ekki algengt. Til eru meira að segja sögur af konum sem fæddu barn úti á sjó eða í fjörunni þegar þær komu í land.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=