50 Þuríður var aðallega formaður á bátum frá Þorlákshöfn. Eins og Halldóra vildi hún helst hafa konur sem háseta. Meðfram sjómennsku rak Þuríður bú og lét vinnukonur sínar fiska með sér. Yfirleitt voru þær konur ógiftar sem voru formenn á bátum. Þuríður giftist nokkrum sinnum en gafst alltaf upp á körlunum. Einu sinni neitaði eigandi báts sem hún var formaður á að borga henni full formannslaun. Hún kærði hann og hann varð að borga henni full laun. Það kom þó oft fyrir að sjókonur fengu minni laun, minna að borða og færri föt en karlmenn. Það fór allt eftir því hversu heiðarlegur og góður eigandi bátsins var. Í sjóróðrum voru sumar konur í pilsum og buxum innan undir. Flestar voru hins vegar í skinnbuxum. Á sjó klæddist Þuríður alltaf skinnstakki og skinnbuxum eins og karlmennirnir. Á landi var konum bannað að ganga í buxum. Það var hægt að kæra konu sem gekk í buxum uppi á landi. Þuríður fékk hins vegar leyfi til að ganga í buxum þegar hún var ekki á sjónum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=