Út úr skugganum - inn í dagsljósið

48 Hún fékk leyfi til að ganga í buxum Sjókonur myndaðu þér konu í litlum báti úti á sjó. Það er engin vél í bátnum, hún þarf að róa með árum. Það er vont veður og hræðilega kalt. Til að róa báti í vondu og köldu veðri þarf maður að vera rosalega sterkur. Við vitum að karlar eru yfirleitt sterkari en konur. Getur það verið að konur hafi í gamla daga verið sjókonur? Að þær hafi róið út á sjó til að fiska? Já, það voru nefnilega miklu fleiri sjókonur en þú getur ímyndað þér. Það var til dæmis aðalstarf Bjargar Einarsdóttur, Látra-Bjargar, sem fæddist árið 1716. Hún varð hvorki húsmóðir né vinnukona en hún var skáld.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=