Út úr skugganum - inn í dagsljósið

3 Í upphafi Konur eru ekki áberandi í kennslubókum um Íslandssögu. Ástæðan er meðal annars sú að lengi vel fengu þær ekki að fara í skóla og sátu ekki í opinberum embættum. Þær gátu til dæmis hvorki orðið prestar né lögmenn, en það voru einkum slíkir karlar sem rötuðu í sögubækurnar. Það var ekki fyrr en á 19. öld að stofnaðir voru kvennaskólar og þeir menntuðu aðallega húsmæður. Það táknar ekki að konur hafi haft minni áhrif á samfélagið en karlar, þeirra áhrif voru bara öðruvísi. Í þessari bók kynnumst við alls konar konum og ólíkum hlutverkum þeirra, allt frá upphafi Íslandsbyggðar og fram á 19. öld. Sum hlutverkin eru enn til á okkar dögum en önnur eru horfin. Þegar þú lest bókina skaltu hugleiða hversu magnaðar formæður þínar voru. Í raun skiptir ekki máli hvar þú fæddist, konur alls staðar í heiminum gerðu ýmislegt merkilegt þó að þær sætu ekki í fínum embættum. Íslandssagan er aðeins sögð að hálfu leyti ef við lesum bara um það sem karlar gerðu. Hér kemur hluti af sögu kvenna. Góða skemmtun.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=