47 en það höfðu ekki allir íslensku nemarnir lært. Stuttu síðar bauðst henni að stýra lítilli verksmiðju á Jótlandi, sem er líka í Danmörku. Solveig sneri aldrei aftur heim til Íslands. Ekki voru allir íslensku nemarnir jafn heppnir og Solveig. Sumir lentu í ýmsum ævintýrum í Kaupmannahöfn. Valgerður Skaptadóttir var prestsdóttir frá Austurlandi sem fæddist árið 1762. Hún lærði á Fjóni eins og Solveig. Hún fékk hins vegar bara að spinna en ekki vefa og var ekki sátt við það. Bót í máli var að hún lærði að reikna og skrifa. Valgerður dvaldi síðan ár í Kaupmannahöfn áður en hún hélt heim. Á þeim tíma virðist hún hafa eignast barn sem dó. Ýmsir telja að faðir þess hafi verið verkstjórinn í verksmiðjunni þar sem hún lærði. Valgerður hélt síðan heim til Íslands og hélt þar áfram að spinna á rokkinn sem hún fékk frá dönskum yfirvöldum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=