Út úr skugganum - inn í dagsljósið

46 ekki hafa hana nálægt sér. Hún var því lögð inn á spítala og sem betur fer batnaði henni fljótt. Solveig var mjög ákveðin ung kona. Hún heimtaði að forstjóri verksmiðjunnar í Kaupmannahöfn kenndi henni allt það nauðsynlegasta svo að hún gæti rekið litla vefnaðarverksmiðju heima á Íslandi. Það vildi hann ekki og því var hún send yfir á Fjón, annars staðar í Danmörku. Þar lærði Solveig að spinna og vefa og sömuleiðis lærði hún á öll tækin í verksmiðjunni. Solveig fór síðan aftur til Kaupmannahafnar og fékk strax vinnu í vefnaðarverksmiðju. Hún fékk þann vitnisburð að hún væri frábærlega iðin og námfús og kynni allt upp á tíu. Sömuleiðis hafði hún lært að reikna og skrifa,

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=