Út úr skugganum - inn í dagsljósið

42 Ein þessara kvenna var Ragnheiður Jónsdóttir í Gröf á Höfðaströnd. Ragnheiður fæddist árið 1646. Hún var komin af valdamiklu fólki sem hafði líka mikla ást á bókum og lærdómi. Ragnheiður hlaut góða menntun heima hjá sér. Ragnheiður giftist fyrst Gísla Þorlákssyni, biskupi á Hólum. Gísli hafði átt tvær konur áður, sem báðar dóu. Gísli dó eftir 10 ára hjónaband en þau Ragnheiður eignuðust engin börn. Þá fluttist Ragnheiður að Gröf á Höfðaströnd. Síðan giftist hún Einari Þorsteinssyni, biskupi á Hólum. Hann dó skömmu eftir brúðkaupið og þá flutti Ragnheiður aftur að Gröf. Ragnheiður var mjög flink í höndunum og saumaði margt fallegt. Á Þjóðminjasafninu er til dæmis altarisklæði eftir hana. Það gaf hún kirkjunni í Laufási í Þingeyjarsýslu. Altarisklæði eru teppi til að hengja framan á altari í kirkju. Hún rak líka einkaskóla fyrir stúlkur. Þar kenndi hún þeim að sauma en einnig lét hún þær lesa ýmsar bækur. Ragnheiður átti nefnilega gott bókasafn með alls konar bókum og skjölum. Margir listamenn og skáld unnu fyrir Ragnheiði. Allt voru það karlar. Þeir máluðu myndir fyrir hana, ortu kvæði og skrifuðu handrit. Í Gröf rak Ragnheiður því ekki bara einkaskóla fyrir stúlkur heldur líka nokkurs konar menningarstofnun. Ragnheiður er eina íslenska konan sem er aðalpersónan á peningaseðli. Myndir af henni prýða fimm þúsund króna seðilinn. Á framhlið seðilsins er mynd af Ragnheiði vinstra megin við Gísla Þorláksson, fyrri mann hennar. Hægra megin við Gísla eru svo tvær fyrri eiginkonur hans. Á bakhlið seðilsins er mynd af Ragnheiði og

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=