41 Ein endaði á peningaseðli Konur sem ráku skóla ó að konur fengju ekki að ganga í skóla fyrr en á 19. öld lærðu margar að lesa heima hjá sér. Árið 1746 varð það raunar skylda á Íslandi að kenna öllum börnum að lesa og eftir árið 1880 áttu þau líka að læra að skrifa og reikna. Oft var það mamma barnanna sem kenndi þeim að lesa. Hún sá líka um að kenna þeim um Guð og Jesú og alls konar bænir og sálma. Lengi voru bara tveir skólar á Íslandi, á Hólum í Hjaltadal og í Skálholti. Prestar og höfðingjar sem voru vel menntaðir ráku líka margir skóla heima hjá sér, nokkurs konar einkaskóla. Í þessa skóla fengu bara strákar að fara, aðallega strákar sem áttu ríka og valdamikla foreldra. Þó vitum við að nokkrar konur ráku einkaskóla eða skóla heima hjá sér. Sumar kenndu bæði strákum og stelpum en aðrar kenndu bara stúlkum. Allar voru þessar konur ríkar. Þær voru ekkjur biskupa eða dætur biskupa og presta.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=