Út úr skugganum - inn í dagsljósið

40 Þegar Kristín var 11 ára fékk hún holdsveiki. Það er hræðilegur sjúkdómur sem afmyndar fólk og gerir það óþekkjanlegt. Nú fær enginn holdsveiki lengur á Íslandi, sem betur fer. Þegar Kristín var 21 árs fékk hún mislinga og varð líka blind. Þá gat hún ekki lengur unnið fyrir sér og var því lægst sett í þjóðfélaginu. Öllum fannst Kristín bara vera fyrir. Hún var hins vegar lögð inn á Holdsveikraspítalann í Laugarnesi þegar hann var stofnaður árið 1898. Þar varð hún sjúklingur og hætti að vera fyrir. Hún reyndist líka magnað skáld og orti ljóðabók sem enn er til. Ljóðabókin var samin handa sjúklingum á Holdsveikraspítalanum, bæði til að gleðja þá og hugga. Kristín gerði því meira gagn með lífi sínu og kvæðum en ýmsir sem voru ríkari.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=