39 Látra-Björg hét í raun Björg Einarsdóttir og fæddist árið 1716. Hún var ágætlega menntuð þó að hún fengi ekki að fara í skóla, frekar en aðrar konur á þessum tíma. Látra-Björg bjó lengi á Látrum á Látraströnd og stundaði sjóinn með öðrum sjómönnum. Síðustu ár ævinnar var Björg mest á flakki. Hún átti þá í raun hvergi heima. Látra-Björg þótti mjög gott skáld og margt fólk lærði vísurnar hennar. Kannski má segja að á flakkinu hafi hún unnið fyrir sér með skáldskap. Hún orti þó ekki alltaf fallega um fólk eða sveitina sem það bjó í þegar henni fannst það ekki taka vel á móti sér og gefa sér nóg að borða. Þegar sumarið gekk í garð og Björg fékk nýja lúðu eða heilagfiski að borða orti hún fallega en gat þó ekki stillt sig um að minnast á veturinn og hörmungar hans: Fagurt er í Fjörðum þá frelsarinn gefur veðrið blítt, hey er grænt í görðum, grös og heilagfiskið nýtt. En þá veturinn að þeim tekur sveigja veit ég enga verri sveit um veraldar reit. Menn og dýr þá deyja. Skáldkonur höfðu það sumar gott en aðrar voru fátækar. Fáar ef nokkrar voru jafnfátækar og Kristín Guðmundsdóttir. Hún fæddist árið 1859 rétt hjá Hafnarfirði. Þegar hún var níu ára var hún send í burt frá foreldrum sínum til ókunnugs fólks. Þar átti hún að vinna fyrir sér. Ástæðan var sú að foreldrar hennar áttu svo mörg börn og voru ákaflega fátækir.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=