Út úr skugganum - inn í dagsljósið

36 Ýmsir voru hræddir við hana Skáldkonur ví hefur stundum verið haldið fram að hér áður fyrr hafi skáldkonur aðallega ort sálma og trúarleg kvæði. Þær hafi ekki hugsað um neitt annað en Guð og Jesú Krist. Það er alveg rétt að einhverjar skáldkonur virðast fyrst og fremst hafa ort trúarleg kvæði en kannski hafa hin kvæðin þeirra bara glatast. Aðrar ortu hins vegar um allt milli himins og jarðar eins og skáldkonur gera núna. Ein fegursta ástarvísa sem til er á íslensku er eftir Rósu Guðmundsdóttur. Hún var kölluð Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa og fæddist árið 1795: Augað mitt og augað þitt, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=