23 Margir menn báðu Halldóru að giftast sér en hún vildi heldur vera ógift bústýra á Hólum og hjálpa pabba sínum. Einn þessara manna var Staðarhóls-Páll. Hann var í hópi ríkustu manna á Íslandi og mikið skáld. Staðarhóls-Páll sendi Halldóru ástarvísur og var mjög hrifinn af því að hún kunni að skrifa og skildi þýsku. Fæstir kunnu að skrifa á þessum tíma þó að þeir væru læsir. Staðarhóls-Páll var 30 árum eldri en Halldóra og ekki almennilega búinn að skilja við fyrri konu sína. Guðbrandur vildi því alls ekki að Halldóra giftist honum. Sennilega hefur Halldóru heldur ekki langað til þess. Síðustu æviárin var Guðbrandur rúmliggjandi og sá Halldóra þá líka um fjármál biskupsstólsins. Á þessum tíma réðu karlmenn nær alfarið yfir fjármálum kvenna. Það var því einsdæmi að kona skyldi stýra fjármálum á opinberri stofnun eins og biskupsstól.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=