22 Þegar Halldóra var 20 ára kom Ari Magnússon í Ögri heim að Hólum og vildi giftast henni. Ari var þá 22 ára og nýorðinn sýslumaður. Hann var í mjög flottum fötum og hafði 18 unga menn með sér sem allir voru 18 ára og líka í fínum fötum. Guðbrandi, föður Halldóru, leist ekkert á Ara, fannst hann alltof góður með sig. Hann harðneitaði því að hann fengi Halldóru fyrir konu. Kristín, systir Halldóru, varð döpur þegar hún frétti af synjun föður síns. Hún spurði pabba sinn hvar hann ætlaði að finna eiginmenn handa þeim ef hann vildi ekki Ara, sem var sætur, ríkur og mjög vel ættaður. Guðbrandur sendi þá eftir Ara og leyfði honum að giftast Kristínu. Sagan segir að í raun hafi Ari verið kominn til að biðja um hönd Kristínar. Þarna var hún 18 ára og því skipti talan 18 miklu fyrir Ara. Hann var að reyna að heilla Kristínu upp úr skónum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=