Út úr skugganum - inn í dagsljósið

21 Karlmannshugur í konubrjósti? Kona sem stýrði biskupsstól ér áður fyrr máttu konur ekki ganga í skóla og fengu því engin embætti. Þær máttu alls ekki verða prestar, hvað þá biskupar. Núna getur kona verið biskup. Áður fyrr voru tveir biskupsstólar á Íslandi, á Hólum og í Skálholti. Guðbrandur Þorláksson varð biskup á Hólum árið 1571. Hann var mjög duglegur að þýða og láta prenta alls konar trúarrit. Halldóra hét elsta dóttir Guðbrands, sem hann átti með eiginkonu sinni. Hún fæddist árið 1573. Þegar Halldóra var 11 ára dó móðir hennar. Það var mikið áfall en sem betur fer gátu Halldóra og systkini hennar öll verið áfram hjá föður sínum. Fátækt fólk þurfti oft að senda börnin sín til ókunnugra ef það missti maka sinn. Guðbrandur var hins vegar mjög ríkur maður og hafði nóg af vinnukonum á Hólum sem hjálpuðu til við að passa börnin. Halldóra þurfti ung að sýna ábyrgð og tók snemma við stjórn búsins á Hólum. Það var mikið verkefni því þar bjó ekki bara fjöldi vinnumanna og vinnukvenna, þar var líka skóli með kennara og hóp af strákum. Það þurfti því að framleiða mikinn mat og öll föt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=