Út úr skugganum - inn í dagsljósið

20 Tveir prestar voru á Möðruvöllum. Sennilega hafa þeir séð um að skrifa bækurnar en Margrét hefur ráðið því hvað var skrifað. Handritin geyma til dæmis Íslendingasögur, fornaldar- og riddarasögur, konungasögur og lögbókina Jónsbók. Þau sýna áhugamál Margrétar en líka að hún hafði ást á bókum og taldi þær mjög mikilvægar. Í gömlum skjölum kemur fram að Margrét naut mikillar virðingar. Í einu slíku skjali kemur nafn hennar á undan öllum körlunum en venjulega komu nöfn kvenna á eftir nöfnum karlanna. Margrét var greinilega stórmerkileg kona sem beitti áhrifum sínum ekki bara í fjármálum. Hún lét skrifa stór og falleg handrit sem við eigum enn í dag og erum því ævinlega þakklát henni fyrir að hafa eytt peningum í bókmenntir og listir. Peningar hverfa en bækur og efni þeirra er endingarbetra.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=