Út úr skugganum - inn í dagsljósið

19 Höfuðprýði Möðruvallakirkju er altaristaflan, alabastursbrík frá seinni hluta fimmtándu aldar. Á Möðruvöllum var ritstofa og voru mörg stór og flott handrit skrifuð á valdatíma Margrétar eftir að Þorvarður eiginmaður hennar dó. Á þeim tíma voru allar bækur skrifaðar á kálfskinn. Það þurfti skinn af mörgum kálfum til að búa til eina bók. Þess vegna voru það bara höfðingjar og klaustur sem höfðu efni á því að framleiða bækur og eiga ritstofur. Prentsmiðja kom ekki til Íslands fyrr en um 1530, löngu eftir að Margrét dó. Í prentsmiðjunni voru bækur prentaðar á pappír og þá byrjuðu Íslendingar líka fljótlega að skrifa bækur á pappír. Hættu sem sagt að nota kálfskinn.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=