Út úr skugganum - inn í dagsljósið

18 Þorvarður Loftsson var mjög ríkur maður. Hann fór ásamt öðrum í Skálholt og drap alla þá sem hann náði í af fylgismönnum biskups. Síðan drekkti hann Jóni Gerrekssyni biskupi í Brúará með því að setja hann í poka. Magnús slapp hins vegar í skip sem sigldi til Danmerkur. Þremur árum eftir þessi dráp giftust Þorvarður og Margrét. Þau bjuggu á Möðruvöllum í Eyjafirði og voru talin ríkustu hjón landsins. Þau höfðu verið gift í tíu ár þegar Þorvarður dó árið 1446. Margrét giftist aldrei aftur. Hjónaband hennar og Þorvarðar virðist hafa verið mjög farsælt og kannski var hann stóra ástin í lífi hennar. Sem ekkja naut hún líka meira sjálfstæðis. Hún réð öllu sjálf og henni tókst jafnvel að eignast meiri peninga eftir dauða Þorvarðar. Margrét og Þorvarður áttu þrjár dætur, Guðríði, Ingibjörgu og Ragnhildi. Þær voru allar sammála um að láta mömmu sína sjá um fjármál þeirra. Margrét gifti þær allar sama daginn og var haldin heljarinnar brúðkaupsveisla á Möðruvöllum. Á Möðruvöllum er kirkja en einnig átti Margrét fleiri jarðir þar sem var kirkja. Hún átti raunar mikinn fjölda jarða, bæði á Íslandi og í Noregi. Margrét gaf kirkjum í Eyjafirði marga fagra dýrgripi. Í Möðruvallakirkju er til dæmis varðveitt útskorin altaristafla frá Englandi sem Margrét gaf kirkjunni. Jón Gerreksson var danskur aðalsmaður sem áður hafði verið erkibiskup í Svíþjóð. Þar setti hann allt í vitleysu vegna kvensemi og stöðugra deilna. Hann var settur af með þeim orðum að hann væri óhæfur til að sinna trúarlegu embætti. Páfinn í Róm gerði Jón Gerreksson hins vegar að Skálholtsbiskupi því hann taldi að það skipti engu máli vegna þess að þeir sem byggju á Íslandi væru hálfgerðir villimenn.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=