17 Magnús bað Margréti um að giftast sér en hún neitaði. Við það varð hann brjálaður. Margrét bjó á Kirkjubóli á Reykjanesskaga hjá Ívari Hólmi bróður sínum. Magnús fór að Kirkjubóli með marga fylgismenn Jóns Gerrekssonar biskups. Magnús byrjaði á því að skjóta Ívar til bana og kveikti svo í bænum. Hann ætlaði að brenna Margréti inni. Af því að íslenskir sveitabæir voru að miklu leyti úr torfi og grjóti tók frekar langan tíma að brenna bæinn. Á meðan tókst Margréti að grafa sig út með skærum sem hún átti. Þegar hún var komin út fann hún trippi, eða ungan hest, og reið á því norður í Eyjafjörð. Margrét hét því að giftast bara þeim manni sem hefndi fyrir morðtilraunina við sig og drápið á Ívari bróður hennar.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=