16 Hún réð öllu sjálf Kona sem rak ritstofu argrét Vigfúsdóttir er eina konan sem hefur rekið ritstofu á Íslandi. Ritstofa var herbergi eða salur þar sem bækur voru skrifaðar. Það kunnu ekki allir að skrifa í gamla daga. Þeir sem skrifuðu bækur voru kallaðir skrifarar og það voru helst ákveðnir munkar og nunnur sem höfðu þann starfa að skrifa bækur. Ritstofustýra er eins og kona sem rekur útgáfufyrirtæki á okkar dögum. Margrét Vigfúsdóttir fæddist árið 1406. Vigfús pabbi hennar var hirðstjóri á Íslandi og Guðríður mamma hennar var af norskum höfðingjaættum. Hún gat rakið ættir sínar til Hákonar gamla Noregskonungs. Það voru því örugglega margir sem vildu giftast Margréti, sem var bæði rík og af fínum ættum. Einn þeirra var danskur maður sem hét Magnús. Sagt var að hann væri launsonur Jóns Gerrekssonar biskups í Skálholti. Magnús var ráðsmaður á biskups- setrinu í Skálholti. Það merkir að hann hafði umsjón með öllum eignum og starfsemi í Skálholti. Magnús hafði ekki gott orð á sér, hann þótti óttalegur ruddi. Fram eftir öldum voru þau sem voru læs sjaldnast fær um að skrifa. Það voru aðallega lærðir menn og einstaka kona og karl sem lærðu að skrifa. Lög um skriftarkennslu allra tóku ekki gildi fyrr en árið 1880.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=