15 þar sem hún bjó. Þar lá hún oftast ein á bæn og iðraðist synda sinna. Nunnur voru sagðar brúðir Krists eða að þær væru trúlofaðar Kristi. Því má ef til vill segja að Guðrún hafi gifst í fimmta sinn þegar hún gerðist nunna. Í þetta síðasta hjónaband gekk hún ein og óstudd. Hún þurfti hvorki að biðja Guð eða aðra karla um leyfi né beita brögðum. Fyrsta nunnuklaustrið á Íslandi, Kirkjubæjarklaustur, var stofnað árið 1186. Annað nunnuklaustur var síðan stofnað árið 1295 á Reynistað í Skagafirði. Dætur höfðingja og ekkjur sem misst höfðu eiginmenn sína gátu fengið menntun í þessum klaustrum. Flestum konum var annars kennt heima. Það var ekki fyrr en á 19. öld sem skólar voru stofnaðir fyrir konur. Þær konur sem lærðu í klaustrum urðu samt ekkert allar nunnur. Stundum þótti ríkum foreldrum ágætt að vita af dætrum sínum á öruggum stað þar sem þær fengu líka góða menntun. Þær voru þá ekki á meðan að kyssa sæta stráka áður en þær giftust einhverjum sem pabbinn valdi. Sumar konur vildu aftur á móti miklu heldur ganga í klaustur og verða nunnur en giftast einhverjum karli sem þær þekktu ekki neitt.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=