14 Guðrún fæddist um árið 970, skömmu áður en Íslendingar tóku kristni árið 1000. Hún varð mjög trúuð þegar hún varð gömul og búin að missa alla eiginmenn sína. Þá gerðist hún fyrsta einsetukonan eða nunnan á Íslandi. Einsetukonur og nunnur voru trúaðar konur sem bjuggu einar eða saman í lokuðu samfélagi eða klaustri. Þær máttu helst ekki eiga neitt og alls ekki vera með karlmönnum. Þær áttu að einbeita sér að sambandinu við Guð og Jesú og fara með bænir. Á tíma Guðrúnar voru engin nunnuklaustur á Íslandi. Guðrún lét hins vegar byggja kirkju á Helgafelli
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=