13 reynslu. Guðrún vildi fara með honum en Kjartan vildi alls ekki hafa hana með sér. Hann lofaði hins vegar að koma heim á réttum tíma og giftast Guðrúnu en sveik það. Þá heimtaði faðir Guðrúnar að hún giftist Bolla Þorleikssyni, vini og frænda Kjartans. Guðrún vildi alls ekki giftast Bolla. Hún sætti sig þó við hann á endanum þegar hún hafði neytt hann til að drepa Kjartan, sem hún hafði elskað eða elskaði kannski enn. Bræður Kjartans drápu síðan Bolla til að hefna fyrir víg Kjartans. Eftir það giftist Guðrún síðasta eiginmanni sínum, Þorkatli Eyjólfssyni. Áður en Guðrún og Þorkell giftust plötuðu þau annan mann til að hefna Bolla svo að Þorkell þyrfti ekki að gera það. Sá sem hefndi hélt að Guðrún myndi vilja giftast honum ef hann hefndi Bolla. Guðrún giftist Þórði Ingunnarsyni sannarlega af ást en hinum eiginmönnum sínum giftist hún ekki af ást. Allt fram á 19. öld giftist fólk yfirleitt ekki af ást. Það voru feðurnir sem réðu hverjum börnin giftust. Þeir hugsuðu fyrst og fremst um að þau giftust einhverjum sem væri nógu ríkur. Ýmsir trúðu því beinlínis að ást og girnd eða losti leiddu bara til óhamingju og svika. Kjartan og Guðrún urðu ástfangin og það leiddi til óhamingju þeirra því Kjartan sveik Guðrúnu. Hins vegar gerðist það oft að ást kviknaði af hjónabandi ef hjónin báru virðingu hvort fyrir öðru.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=