Út úr skugganum - inn í dagsljósið

12 „Þeim var ég verst er ég unni mest“ Einsetukonur og nunnur uðrún Ósvífursdóttir var fyrsta einsetukonan og nunnan á Íslandi. Guðrún er aðalpersónan í Íslendingasögu sem heitir Laxdæla saga. Til er gömul vísa sem segir að sagan ætti miklu heldur að heita Gunnudæla í höfuðið á Guðrúnu. Yfirleitt voru það karlar sem voru aðalpersónur Íslendingasagna, enda fjalla þær mikið um deilur og bardaga. Laxdæla saga fjallar hins vegar aðallega um Guðrúnu og fjögur hjónabönd hennar. Laxdæla saga er ekki ástarsaga eins og einhver gæti haldið. Guðrún var bara 15 ára þegar hún giftist fyrst og var ekki spurð hvort hún vildi ganga í hjónaband. Faðir hennar ákvað að gifta hana og eins og aðrar konur varð hún að beygja sig undir vilja föðurins. Hún skildi þó fljótlega við fyrsta eiginmann sinn, Þorvald Halldórsson, því hún varð skotin í Þórði Ingunnarsyni. Þórður var líka giftur. Guðrún og Þórður þurftu að beita brögðum til að skilja við maka sína. Það var ekki algengt að fólk skildi í þá daga. Bæði var það dýrt og foreldrarnir urðu oft brjálaðir. Þórður og Guðrún voru ekki lengi í hjónabandi því hann drukknaði. Þá kynntist Guðrún Kjartani Ólafssyni í sundi, í Sælingsdalslaug í Dalasýslu. Kjartan ákvað að fara til Noregs. Á miðöldum fóru ungir menn oft í siglingu til að sýna manndóm sinn og öðlast

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=