11 Tilgangurinn með norræna nafninu var að klippa á öll tengsl þeirra við fyrra líf. Fyrir eigendur ambátta var mikilvægt að þær upplifðu sig ekki sem frjálsar manneskjur. Þær áttu að hætta að hugsa um sitt fyrra líf og frelsi. Með þögninni hélt Melkorka hins vegar bæði í upprunalegt nafn sitt, tungumál og keltneska eða írska menningu og því var erfiðara að kúga hana. Hún gat líka miðlað sínum írska menningararfi til sonar síns. Margt í menningu okkar Íslendinga er því bæði norrænt og af keltneskum uppruna.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=