9 Einu sinni um vetur voru Egill og Þórður vinur hans í knattleik við Skalla-Grím, pabba Egils. Knattleikur var oftast spilaður á ís með knatttré og knetti eða bolta. Fyrst gekk Agli og Þórði miklu betur. Leikurinn stóð lengi en um kvöldið hljóp mikill æsingur í Skalla-Grím. Hann tók Þórð upp og henti honum af alefli í svellið svo að hann dó. Síðan ætlaði hann að taka Egil og láta hann fara sömu leið og Þórður. Þá sagði Þorgerður brák við Skalla-Grím að hann skyldi nú endilega ganga frá syni sínum. Hún var að reyna að hafa vit fyrir honum með því að hæðast pínulítið að honum. Skalla-Grímur varð óður við orð Þorgerðar og ætlaði þá að grípa hana. Hún hljóp hins vegar undan honum og henti sér til sunds fram af háum
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=