Út úr skugganum - inn í dagsljósið

8 Ekki frjáls manneskja Ambáttir kki er vitað nákvæmlega hvenær fyrstu landnáms- mennirnir komu til Íslands. Þó telja ýmsir að það hafi verið í kringum árið 870. Flestir sem námu hér landi í upphafi voru frá Noregi en einnig kom hingað fólk frá Danmörku, Svíþjóð og Írlandi. Sumir landnámsmenn höfðu með sér fólk sem þeir höfðu rænt í öðrum löndum og gert að þrælum og ambáttum. Í hópi landnámsfólks voru flestar ambáttirnar og þrælarnir frá Írlandi. Íslendingasögurnar segja aðallega frá fólki sem var ættað frá Noregi. Það réð öllu á Íslandi. Þegar fjallað er um ambáttir í Íslendingasögunum er það stundum gert á neikvæðan hátt en oft hjálpar ambátt aðalsöguhetjunni. Þær pössuðu börn húsbænda sinna og tóku stundum miklu ástfóstri við þau. Egils saga er Íslendingasaga sem fjallar um Egil Skallagrímsson. Ambáttin Þorgerður brák passaði Egil þegar hann var lítill. Agli þótti mjög vænt um hana og sömuleiðis þótti henni vænt um hann. Þorgerður brák var stór og sterk eins og karlmaður og hún var líka sögð göldrótt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=