Unugata
Hvar stóð gamla húsið? 21 Draugar Karl Ottó opnaði dyrnar. – Passið ykkur, hvíslaði hann. Nú eru draugar fluttir inn! – Hvaða draugar eru það? spurði Finnur. – Þarna! sagði Karl Ottó og benti. Við enda götunnar stóð gamalt hús. Það hafði lengi staðið autt. Nú voru þar blóm í glugga, teppi og mottur á snúru og fyrir utan húsið stóð lítill rauður bíll. – Þetta vissi ég ekki! sagði Finnur. – Þeir komu í nótt, sagði Karl Ottó og flýtti sér að loka dyrunum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=