TX-10 Það er ég

TIL KENNARA OG FORELDRA Í Smábókaflokki Menntamálastofnunar er reynt að höfða til ólíkra áhugasviða barna með texta sem er innihaldsríkur þrátt fyrir einfalda framsetningu. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og lögð áhersla á að þær höfði bæði til tilfinninga og rökhugsunar og ekki síst kímnigáfu lesenda. Á mms.is má finna verkefni til útprentunar. Öll verkefni í flokki Smábóka má einnig nálgast á Smábók – safnvefur. UMRÆÐUR HEIMA OG Í SKÓLA Tölvunotkun. Nota pabbi og mamma tölvur í vinnunni? En heima? Eru systkini á heimilinu? Hvernig nota þau tölvuna? En þú? Tölvuleikir. Hvernig tölvuleiki mynduð þið vilja búa til ef þið gætuð? Spennuleiki, fyndna leiki, ráðgátur eða eitthvað allt annað? Af hverju? Hvað eyðið þið miklum tíma í að spila tölvuleiki? Uppáhaldsleikir? Hreyfileikir. Hvers vegna þurfa allir að hreyfa sig? Hvaða leiki þekkið þið sem krefjast útiveru og hreyfingar? Í bókinni Líf og leikur 1 má finna ýmis skemmtileg verkefni. SÖGUSVIÐ. Hver er það sem segir söguna í bókinni? Hvernig væri sagan öðruvísi ef Bára segði hana? MYNDVINNSLA OG MYNDSKOÐUN Myndasaga. Barnið teiknar myndir sem sýna framvindu tölvuleiks sem það þekkir eða ímyndar sér. Huga þarf að upphafi, miðju og endi. Myndir má teikna með penna á blöð í A5 stærð og raða saman á vegg eða í bók. Hreyfimyndabók. Gerð hennar krefst nokkurrar nákvæmni en er býsna skemmtileg. Einföld teikning í „Óla prik“ stíl er teiknuð á hvert blað þannig að staða hennar breytist ofurlítið frá einni mynd til annarrar. Blöðin eru heft saman í litla bók, þegar þeim er flett hratt sýnist myndin hreyfast. Myndskoðun. Sagan gefur tilefni til að ræða um stærðir í myndum. Engin leið er að segja til um hvort myndefni er lítið eða stórt nema við höfum samanburð við eitthvað annað. Gaman er að skoða hvernig fjarlægð breytir stærðarhlutföllum í mynd. FJÖLMENNING Framandi umhverfi. Tölvuveran þekkir ekki umhverfi Báru og kann ekki á neitt þar þótt hún ráði við flest allt í sínu eigin umhverfi. Hvernig skyldi Báru vegna inni í tölvunni? Kann hún á allt þar? Hvernig líður okkur ef við komum á stað þar sem allt er nýtt og ókunnuglegt?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=