Trúarbrögðin okkar

44 Ein stór fjölskylda Eins og við höfum fengið að kynnast í þessari bók þá getum við aðhyllst mismunandi trúarbrögð og komið frá mjög ólíkum fjölskyldum en samt verið vinir. Þið fenguð að kynnast fimm börnum. Þau tilheyra öll mismunandi trúarbrögðum en ganga í sama skóla og eru góðir vinir. Það eru til margs konar trúarbrögð í heiminum. Hefðir og siðir tengjast þessum trúarbrögðum. Við verðum öll að bera virðingu fyrir trú hvers og eins. Trúarbrögðin kenna okkur að þykja vænt um hvert annað og þau hjálpa okkur að eignast vini. Ef allir færu eftir því sem trúar- brögðin boða gerðust færri slæmir hlutir í heiminum. Þá gætum við lifað saman eins og ein stór fjölskylda.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=