Trúarbrögðin okkar

32 Ísak – Komið þið sæl. Ég heiti Ísak. Ég á tvo bræður og eina systur. Skemmtilegast af öllu finnst mér að vera í tölvuleikjum. Ég á mjög marga góða tölvuleiki en suma finn ég líka á netinu. Ég æfi sund tvisvar í viku og það finnst mér skemmtilegt. – Við erum gyðingar í fjöl- skyldunni minni en það eru trúarbrögð sem eiga margt sameiginlegt með kristinni trú. Trúarbók okkar kallast Tóra en það er sama bók og fyrri hluti Biblíunnar, Gamla testamentið. Ættfaðir gyðinga var Abraham og um hann er hægt að lesa í Mósebókunum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=