Trúarbrögðin okkar

27 Ómar – Komið þið sæl. Ég heiti Ómar. Ég hef gaman af því að spila fótbolta. Mér finnst líka gaman að hlusta á tónlist og sérstaklega ef ég get stillt hana mjög hátt. Seinna langar mig til að verða trommuleikari í hljómsveit sem ferðast um allan heiminn. – Foreldrar mínir fluttu frá Marokkó áður en ég fæddist. Ég á tvö systkini sem eru yngri en ég. Við erum múslimar en það þýðir að við tilheyrum trú sem nefnist islam. Við trúum á Guð en á arabísku nefnist hann Allah. Við trúum því að Guð hafi sent okkur spámenn til að segja okkur frá lögmáli Guðs. Mikilvægasti spámaðurinn hét Múhameð.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=