Tónlist og umhverfi - kennarabók

Námsefnið Tónlist og umhverfi er hluti af bókaflokki í tónmennt fyrir yngsta stig grunnskóla. Það er einkum ætlað 1.–2. bekk þó að vissir hlutar þess henti einnig vel fyrir eldri nemendur. Námsefnið samanstendur af nemendabók, kennarabók og hlustunarefni. Hér er unnið með tónlist og umhverfi á fjölbreytilegan hátt, í leik, söng, hreyfingu, skapandi ferlum, hlustun og skriflegum verkefnum. Efnið á að hvetja börn til að gefa gaum að umhverfi sínu, ekki síst hljóðheiminum. Tjáning í leik, hreyfingu og tónlist hentar börnum vel til að skilja, skynja og uppgötva heiminn. Tónlist veitir þeim tækifæri til að tjá tilfinningar og hughrif sem erfitt er að koma orðum að. Efnið er tekið saman með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár fyrir tónmennt. KENNARABÓK og umhverfi Pétur Hafþór Jónsson og Þórdís Sævarsdóttir Teikningar Pétur Atli Antonsson 40350

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=