Töfrasprotinn

5 Kannski ekki miklu sterkari en samt svolítið, nóg til þess að þú gast lyft brúsanum, bætti afi við. En þú skalt samt ekkert vera að reyna þetta nema ég sé hjá þér til að passa að brúsinn lendi ekki á þér ef þú ræður ekki nógu vel við hann. - Æ, afi, láttu ekki svona. Þú hjálpaðir mér, ekki þetta gagnslausa prik. - Kári minn, þú mátt trúa því að það er ýmislegt í þessum heimi sem við skiljum ekki. Svo stakk afi fánaprikinu inn í rifu á fjósveggnum og þeir fóru inn að borða. Af hverju ætli afi hafi bannað Kára að lyfta brúsanum nema hann sjálfur væri hjá honum?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=