Töfrasprotinn

4 - Ertu nú alveg viss um það, karl minn? sagði afi. Við skulum bara prófa. Stingdu prikinu niður í hálsmálið og reyndu svo að lyfta brúsanum. Ég skal styðja við hann svo að þú meiðir þig ekki ef þú dettur með hann. Kári gerði eins og afi sagði og reyndi svo að lyfta brúsanum. Og viti menn, hann lyftist. - Sko, sagði afi. Það tókst. Segðu svo að það séu engir töfrasprotar til. Kári fór að hlæja. - Nei, afi minn, þú platar mig ekki svona. Þú hjálpaðir mér að lyfta honum. - Nei, nei, sagði afi. Ég studdi bara við hann. Og þér er óhætt að trúa því að þetta er raunverulegur töfrasproti sem gerir þig sterkari en þú ert.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=