Töfrasprotinn

3 Kári tók í höldurnar á brúsanum og rembdist eins og hann gat. En það var sama hvernig hann tók á, brúsinn haggaðist ekki. - Heyrðu, sagði afi. Veistu nú hvað? Ég á hérna töfrasprota sem getur gert þig sterkan. Sjáðu. Og afi dró upp fána á litlu trépriki, eins og margir eru með 17. júní. - Þetta er enginn töfrasproti, sagði Kári. Þetta er bara fáni fyrir litla krakka. Og svo eru ekki til neinir töfrasprotar. Hvað fannst Kára um töfrasprota afa?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=