Töfrasprotinn

16 Þegar Kári stakk nýja sprotanum í hálsmálið heyrði hann dverginn hvísla ofurlágt í eyrað á sér: - Nú tökum við báðir vel á og látum þann gamla ekki halda brúsanum niðri. Afi kraup niður á hnén og lagði báða handleggina utan um brúsann. Kári tók um höldurnar og lyfti brúsanum, virtist ekki hafa mikið fyrir því. Afi horfði gapandi af undrun á sonarson sinn. En Kári sagði rólega: - Já, afi minn, það er ýmislegt í þessum heimi sem við skiljum ekki. Af hverju varð afi undrandi þegar Kári gat lyft brúsanum?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=