Töfrasprotinn

15 Svo fóru þeir bak við fjósið og Kári reyndi að lyfta brúsanum án þess að vera með neinn töfrasprota. Það gekk ekkert, frekar en áður. Afi rétti honum fánaprikið. Kári tók við því, stakk því í hálsmálið og rembdist svo mikið að hann varð eldrauður í framan. Afi varð líka eldrauður í framan og blés eins og hvalur en brúsinn haggaðist ekki. Þá sagðist Kári ætla að prófa sinn töfrasprota þótt afi hefði enga trú á honum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=