Töfrasprotinn

12 - Vá! sagði Kári. En heldurðu nokkuð að þetta prik geti verið töfrasproti og gert mig sterkan? Dvergurinn hló. - Er þetta nú enn ein skreytnin* í honum afa þínum? Já, hann er gamansamur karlinn. Nei, það búa engir töfrar í þessu litla priki. - Ég vissi það alveg, sagði Kári. Afi hefur bara lyft undir brúsann þegar hann þóttist vera að styðja við hann. - Já, mér sýnist þú vera svolítið skynugur piltur, sagði Litur. - En heyrðu mig, eigum við ekki að leika svolítið á hann afa þinn? Ég er býsna sterkur, skal ég segja þér, þótt ég sé ekki hár í loftinu, sagði Litur. * skreytni = lygi

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=