Þekktu réttindi þín - Vinnubók

4 Réttindi barna Skoðaðu veggspjaldið eða bæklinginn sem sýnir öll réttindi barna. Berðu réttindin saman við listann þinn úr æfingu 2. Hvaða réttindi eru á listanum þínum? Hvers vegna þurfa börn sérstök réttindi? Hvað þarft þú raunverulega til þess að þroskast og lifa heilbrigðu lífi? Þjóðir heimsins hafa lofað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að börn fái það sem þau þurfa til að vaxa, þroskast og lifa heilbrigðu lífi. Þetta loforð köllum við samning. Samning um réttindi barna. Þessi réttindi segja fullorðnum hvernig þeir eiga að koma fram við börn. Næstum því öll lönd í heiminum hafa samþykkt þennan samning og kallast hann Barnasáttmálinn. Þessi réttindi barna eiga við um öll börn í heiminum undir átján ára aldri. 01 02 03 Æfing 4 Æfing 5

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=